Færsluflokkur: Bloggar
2.6.2007 | 18:12
Hamingjupróf
Var að taka hamingjuprófið á síðunni hennar Gurríar og hér eru úrslitin:
***You Are Pretty Happy***
You generally have a happy, fulfilling life. But things could be a little better, and deep down, you know it.
Maybe you need more supportive friends or a more challenging career. Something is preventing you from being totally happy. You just need to figure out what it is!
Prufið sjálf á http://www.blogthings.com/howhappyareyoureallyquiz/
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.6.2007 | 00:57
Fegurð og dásmlegheit
Í kvöld hefur rignt, langþráður vökvi himinsins hefur virkað eins og ofvirk skúringakona á allt utanhúss og það er dásamlegt.
Vinnuvélamennirnir hættu um fjögur leitið í dag og dásamleg þögnin strýkur manni um vangann.
Útsýnið út um eldhúsgluggann er næstum því fagurt. Laufgað limgerðið og klettaveggurinn kallast á í djúpgrænu, rauðbrúnu og öllum tilbrigðum af glansandi gráu og silfruðu. Vinnuvélarnar sitja prúðar og stilltar langt ofaní holunni með höfuð undir væng, dreymandi um frí til mánudagsmorguns.
Ef ég hefði myndavél við höndina myndi ég sýna ykkur að það útsýni sem fyrr í dag minnti einna hellst á sprengjugígana í Beirút er núna tilefni þessarar draumhyggju. Það er kannski ágætt að birta ekki myndir af skammvinnum dásemdartímabilum, hver veit hvað ég sé út um téðan eldhúsglugga þegar ég vakna í fyrramálið.
Den tid - den sorg
Viðbót daginn eftir: Vaknaði við vinnuvélaskark á vanalegum tíma (um áttaleitið). Leit spennt út um eldhúsgluggann og sjá, allt var eins og áður og ekkert eins og í gærkvöldi. Hlýtur að hafa verið blanda af rigningu og skrítinni birtu, en gott er að vita að fegurðin birtist manni stundum þegar og þar sem hennar er síst von.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.5.2007 | 22:01
Tvær góðar og sú þriðja sæmó
Ég hef ekki lesið mjög mikið uppá síðkastið. Þrjár lágu þó í valnum á Lanzarote, þar af tvær afbragðsgóðar. Þessa þriðju má vel lesa sér til afþreyingar en þar sem ég skildi hana eftir í umsjá Iðunnar vinkonu minnar af Skaganum man ég hvorki hvað hún heitir né eftir hvern hún er, svona er nú minnið farið að leika mann. Ég man þó að hún er eftir sænska konu, Camillu eitthvað - kannski . Og sagan er um ný morð og gömul á ungum konum, lögreglumann sem heitir Patrik og konuna hans sem heitir Erika. Hún er ófrísk og endar bókin á því að hún er að fara að eiga barnið einhverjum vikum fyrir tímann. Sagan gerist um sumar sem er óvenju heitt og allir alltaf að kafna úr hita og leka niður úr svita. Ég hef lesið aðra bók um sama fólk á sama stað, þá væntanlega eftir sama höfund, en þar var það Erika sem var aðalsöguhetjan (en ekki Patrik sko). Jæja, eyðum ekki fleiri orðum á Predikarann - SKO - núna mundi ég allt í einu hvað bókin heitir .
Önnur af góðu bókunum er Tryggðarpantur eftir Auði Jónsdóttur. Alveg dásamleg lesning. Sem gat einhvern veginn ekki endað öðruvísi en hún gerði. Fjallar um einhleypa konu á fertugsaldri sem erft hefur stóru, flottu íbúðina sína og eyðslufé þar að auki eftir ömmu sína og nöfnu. Eyðslufé, sem í byrjun bókar er uppurið. Og það kom henni algjörlega í opna skjöldu. Hún hafði eins og fleiri látið bankann sjá alfarið um fjármál sín og eyddi bara eins og henni sýndist, þá allt í einu fær hún tilkynningu frá bankanum um að nú sé ekki til innistæða fyrir Visa-reikningnum. Og eins og fólk gerir þá reynir hún að bjarga sér með því að leigja út frá sér herbergi. Leigjendur hennar eru þrjár konur sem ekki eiga höfði sínu að halla í kerfinu, allar af erlendu bergi brotnar, og lítil dóttir einnar kvennanna. Og hefst þá ótrúlegur söguþráður sem ekki verður rakinn nánar hér til að skemma ekki fyrir þeim sem eiga eftir að lesa þessa bók. Sem ég hvet alla til að gera, það er sko engin tímaeyðsla.
Hin góða bókin er Viltu vinna milljarð? eftir indverska höfundinn Vikas Swarup. Sagan gerist alla vega á Indlandi svo ég reikna með að höfundurinn sé indverji. Ég skrifa kannski um hana seinna en hún er virkilega vinsæl og hefur verið á metsölulistum bæði hér á landi og erlendis um nokkurt skeið. Þið sem enn ekki hafið lesið hana - passið að missa ekki af henni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.5.2007 | 22:32
Ásta Lovísa látin
Þessi unga, hugrakka og falleg stúlka er látin, langt fyrir aldur fram. Ég þekkti hana ekki persónulega en þekki til fósturmóður hennar sem ég sendi alla mína samúð, einnig til barnanna hennar þriggja og annarra aðstandenda.
Ásta Lovísa Vilhjálmsdóttir lést á líknardeild Landspítala háskólasjúkrahúss í dag. Þetta kemur fram á bloggsíðu hennar. Ásta vakti landsathygli fyrir baráttu sína við krabbamein, en veikindum sínum lýsti hún á bloggsíðu sinni og í viðtölum í sjónvarpi. Tímaritið Ísafold útnefndi hana Íslending ársins 2006 í desember á síðasta ári.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.5.2007 | 23:07
Systir mín stúdentinn
Ég má til að monta mig af henni Dísu systur minni en hún var að útskrifast sem stúdent frá MH á föstudaginn. Hún verður fimmtug í desember í ár. Og hún hyggur á háskólanám í haust. Mér finnst hún ótrúlega flott að hafa náð þessum áfanga. Hún er búin að segja upp vinnunni sinni til tuttugu ára sem sem tannsmiður hjá tannréttingalækni og skrá sig í sálfræði í HÍ! Hún hefur reyndar alltaf getað allt sem hún hefur viljað
Til hamingju elsku systir mín, ég er ótrúlega stolt af þér
Bloggar | Breytt 1.6.2007 kl. 09:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.5.2007 | 22:22
Allt er nú til
Eins og ýmsir lesendur þessarar síðu vita hætti ég að reykja fyrir þrem mánuðum síðan. Sem er ekki lengur í frásögur færandi sem slíkt, en afleiðingarnar hætta bara ekki að koma mér á óvart.
Málmbragðið í munninum hefur ekkert lagast og matarlystin er enn mun meiri en hún var áður. Það er mjög vont að vera svangur, þá langar mann í eitthvað, bara eitthvað, ekkert endilega sígarettu. Slenið er að mestu horfið en mér var virkilega farið að ofbjóða sinnuleysið á tímabili. Hef tekið 2 töflur af Spirulina daglega í ca. 2 vikur og er öll önnur. Samt ekki nægilega hressileg til að nenna aftur í ræktina. Fékk mér þó hjól um daginn og hyggst hjóla í sumar mér til heilsubótar. Ég er enn ekki farin að geta hóstað eins og manneskja og munn- og hálsþurrkur hrjá mig nánast daglega. Og svo er það spæling að finna hellst bara vonda lykt eða áfram enga.
Ég er dálítið eirðarlaus á köflum og ákvað því að fara að prjóna eitthvað mér til sálubótar við sjónvarpið á kvöldin í staðinn fyrir að borða. Varð mér úti um prjónablað og fór að skoða leiðbeiningar og skammstafanir, en ég hef ekki prjónað árum saman. Þar á meðal var listi yfir stærðir og mál. Ég hef alla mína ævi notað stærðir S og M, eða frá 34 til 36. Auðvitað hef ég alltaf verið mjó eins og görn, eins og handavinnukennarinn minn orðaði það svo smekklega í barnaskóla.
En í kvöld fékk ég sjokk ársins, ég varð svo hissa að ég settist hér við tölvuna til að setja þessa uppgötvun á blað/skjá. Ég hef tilhneigingu til að trúa öllu sem ég les (jafnvel þótt ég skrifi það sjálf ) Samkvæmt stærðartöflunni í blaðinu nota ég núna 3 stærðir samtímis, eða M, L og XL. Ég ætla ekki að upplýsa hvaða stærð mældist hvar á skrokknum. En það verður fjandi erfitt að prjóna eftir uppskriftum þegar maður er orðinn svona misvaxinn! Á dauða mínum átti ég von - í orðsins fyllstu merkingu!
En auðvitað er alltaf hægt að prjóna trefil eða sjal ...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.5.2007 | 17:11
Komin heim og allt við það sama
Skreiddist inn heima hjá mér um fimmleitið í morgun, þreytt en sæl með gott frí. Var samt vöknuð um tíuleitið og tilbúin til að takast á við hversdaginn. Veðrið er skárra en ég bjóst við og alls ekki svo kalt en flugmaðurinn (þessi sem talar :-) tilkynnti rétt fyrir lendingu að hér í höfuðborginni væri þriggja stiga hiti.
Holan hér fyrir utan hefur stækkað umtalsvert á þessari viku sem ég brá mér frá og það var eiginlega bara fyndið að á slaginu tólf byrjuðu vélamennirnir á vinna á höggbornum, beint fyrir utan gluggana hjá mér. Grannar mínir eru sennilega enn þreyttari á hávaðanum því þeir hringdu og kærðu verknaðinn. Það er nú einu sinni annar í hvítasunnu! Og ekki leið á löngu þar til lögreglubíll með tvo þjóna réttvísinnar innanborðs renndi niður í holuna og stöðvuðu þeir tiltækið hið bráðasta og við horfðum á eftir vélamönnum aka í burtu. Dásamleg þögn ríkti í u.m.b. þrjár klukkustundir. En viti menn, birtist þá ekki einn vélamaðurinn og byrjar að flytja grjótið í holunni fram og tilbaka. Hann var að hætta núna, klukkustund síðar. Mér er alveg hulin ráðgáta hvers vegna þessi klukkutími á gröfunni var svona bráðnauðsynlegur. Kannski er bara jafn vanabindandi fyrir suma að vinna á gröfunni sinni eins og það er fyrir mig og fleiri að setjast við tölvuna og blogga svolitla stund
Manni væri kannski nær að líta í eigin barm.
Auðvitað get ég líka sett mig í spor verktakans sem þarf örugglega að standa við gerða samninga og halda verkáætlun. Það er vandaverk að framkvæma svona stóra aðgerð eins og Höfðatorgið er inni í miðri íbúðabyggð og ef ekki er sátt við fólkið í næsta nágrenni er allt fljótt að fara í hund og kött og kærur til lögreglunnar geta orðið daglegt brauð. Ekki flýtir það fyrir trúi ég.
Aðgát skal sem sagt höfð ...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
26.5.2007 | 21:55
Dásamlegur dagur!
Hér er búid ad vera dásamlegt í allan dag, ekkert allt of heitt, bara mátulegt. Allir ferdafélagarnir eru ordnir svo yndislegir á litinn og ekkert okkar langar heim á morgun. Vid hofum raett tad fram og til baka hvort sumarid sé ekki orugglega komid heima, trátt fyrir fréttir af 3 stiga hita í hofudborginni. Draumar okkar hafa bent til tess ad kuldakastinu á landinu bláa sé lokid og hlýtt og gott vedur hafi tekid vid til ad vera, a.m.k. til ágústloka. Sjáum bara til!
Vid komum heim til landsins okkar fagra um midja adra nótt, fram ad tví verdur sennilega blogghlé. Takka teim sem hlýddu, góda nótt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.5.2007 | 21:12
Gras og ekki gras
Í sídustu faerslu tala ég um gras. Tad verdur ad leidrétta, ádur en lengra er haldid, tad er ekkert gras á tessum eyjum. Nema svo vandlega gródursett ad unun er á ad horfa. En Havaírósir vaxa hér villtar og án fyrirhafnar ad tví er virdist.
Ég fór í skemmitlega skodunarferd í dag, upp eftir endilangri eyjunni. Lagt var af stad um níuleitid í brakandi turrki og sólskini. Fyrsta stopp var í ákaflega sérstokum kaktusagardi, gerdum af manna hondum. Tar var ad finna um 1000 tegundir kaktusa og annarra jurta, hagnalega gródursettra í gardi sem minnti á ítalska arenu. Tegar rútan stoppandi til ad hleypa okkur út byrjadi ad rigna.
Naest skodudum vid dásamlega hella sem myndudust nyrst á eyjunni í eldgosi á átjándu oldinni. Tegar vid stigum út úr rútunni byrjadi aftur ad rigna. Tadan lá leidin á frábaeran matsolustad tar sem eftir okkur beid rosalega gódur matur. Og hvad var í matinn, spyr kannski einhver. Bara allskonar, eins og Kiddi minn myndi segja tegar of langt mál vaeri upp ad telja.
Sídasta stopid var á safni sem byggt var sem einkaheimili arkitekts og listmálara nokkurs sem má í raun segja ad hafi hannad tessa eyju. Man ekki hvad hann heitir í bili, segi betur frá tví seinna. En tetta hús var alveg einstakt, tad líkt og óx út úr hrauninu og sum herbergin voru neanjardar med gati í hrauntakinu. Eiginlega ekki haegt ad lýsa tví. Nema, tegar vid stigum út úr rútunni til ad fara inn í húsid býrjadi ad rigna í tridja sinn! Og ekkert smá, droparnir voru jafn stórir og undirskálar. Tad var blautur hópur en gladur sem ók heim á leid í dag, skjálfandi úr kulda í loftkaeldri rútunni. En okkur var fljótt ad hitna í sólinni tegar heim var komid og eyddu flestir tví sem eftir lifdi dags í sólbadi á strod eda sundlaugarbarmi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
24.5.2007 | 20:31
Gódur dagur
og takk fyrir samúdarkvedjurnar, tid sem lásud sídustu faerslu, audvitad var ég ad fiska eftir teim í gaerkvoldi. Ég skal stydja ykkur tegar ég skynja torfina ...
Í dag fór ég ásamt frídu foruneyti til naestu eyjar, Fuertoventura held ég hún heiti. Ég veit hún er vinsaell ferdamannastadur og margir Íslandingar hafa heimsótt hana á undanfornum árum. Allt var svo sem svipad og "heima" nema heldur heitra, svolítid skítugra og miklu fleira fólk. Og flest lokad á siestutíma. Grasid var sem sagt ekki graenna teim megin. En í godum félagsskap er bara gaman ad dútla sér eitthvad. Og ég finn verulega fyrir tví hvad tetta frí er ódum ad styttast, elsku mánudagur, haegdu á tér ... ekkert liggur á
Ég vil koma tvi áleidis til aettingja og vina ad erfitt hefur reynst ad senda SMS skilabod hédan. Veit ekki hvad veldur.
Góda nótt og bestu kvedjur til allra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)