Nýtt líf, dagur 4

Í gærkvöldi og í dag hefur reynt á að díla við mótlæti daglegs lífs bæði innan og utan hælis (við köllum heilsustofnunina hæli í gríni).

Í fyrrakvöld fór ég að hlaupa upp í útbrotum og í gærkvöldi fékk ég þann úrskurð að ég væri með ofnæmi fyrir einhverju í leirnum sem notaður er í leirböðin og þess vegna má ég ekki fara í klórvatn á næstunni. Það þýðir að ég má ekki fara í heita pottinn eða sundlaugina það sem eftir lifir afeitrunartímanns. Sem er hundfúlt en ekkert við að gera.

Svo í dag ákváðum við konurnar í hópnum að skreppa á Selfoss og athuga hvort við gætum ekki eytt einhverju af uppsöfnuðum gróða síðustu viku (þ.e. því sem við eyddum ekki í sígarettur). Ég ákvað þá að fara með bílinn minn á bónstöð og láta þrífa úr honum reykingalyktina áður en ég færi heim á sunnudaginn. Þegar ég ætlaði að opna bílinn var hann algjörlega rafmagnslaus og ég gat ekki opnað hann. Verð því líklega að keyra hann heim óþrifinn. En strákarnir í hópnum ætla að hjálpa mér með hann á morgun, svo sjáum við til. En ég bölvaði mjög hraustlega, vægast sagt...

Við fórum á Selfoss á öðrum bíl og ég hitti 3 af mínum bestu vinkonum á förnum vegi. Þær voru mjög hissa á að sjá mig "ganga lausa".  

Meira seinna, kveðja til ykkar allra sem lesa. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus  Garðar Júlíusson

Pepperi pepp...gó Vibba...við fylgjumst með og og við trúum á þig.

Júlíus Garðar Júlíusson, 1.3.2007 kl. 22:08

2 identicon

Bölvað vesen alltaf í þessum litla sæta bíl þínum. Og þú sem að varst að borga skrilljónir í viðgerð á honum

Sá að þú reyndir að hringja í mig í gær, endilega reyndu aftur í kvöld, það væri gaman að heyra í þér.

Linda (IP-tala skráð) 2.3.2007 kl. 09:18

3 identicon

Ja hérna, þetta er nú meira hælið að sleppa ykkur lausum svona;-) Gott að þetta gengur svona vel fyrir utan ástandið á Græna jálknum. Knús ljúfan mín og gangi þér vel.

Ps. þú verður bara að fara í nudd í staðinn og drekka vatn, gætir kannski litið í bók svona þegar potttímarnir eru? 

Halla (IP-tala skráð) 2.3.2007 kl. 10:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband