Lyfjaverð á Íslandi

Ég hef verið svo heilsugóð til þessa að ég hef ekki getað verið með í umræðunni um hátt lyfjaverð hér á landi vegna vanþekkingar. Nú er ég aðeins búin að fá nasaþefinn af því hvað það kostar að nota heilbrigðiskerfið og þurfa að taka lyf. Og mér satt að segja blöskrar. Tveggja mánaða skammtur af Zybaninu sem mér hefur verið tíðrætt um (og gildir þá sennilega sama um ýmiss önnur geðlyf) kostar um 16.000 kr., mánaðarskammtur af magatöflum kostar hátt á fimmta þúsund og það kostar 10.000 kr. að fara í magaspeglun. Það er svei mér ekki fyrir neina fátæklinga að verða misdægurt hér á landi.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Valsson

Ég vil alls ekki gera lítið úr hjálparstarfi í vanþróuðum löndum.
Hins vegar verð ég allta hissa þegar ég heyri slagorðin: "Fyrir aðeins $20.- getur þú bjargað einum sjúklingi með alnæmi í Afríku"!
Hvað myndi sambærilegur kostnaður vera á Íslandi?

Júlíus Valsson, 3.5.2007 kl. 10:47

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Kíktu hér...

www.gjonsson.blog.is

Enn ein hörmungarsagan um íslenska heilbrigðiskerfið

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 3.5.2007 kl. 10:50

3 identicon

Sæl vilborg mín varð að kasta til þín kveðju þar sem ég rakst á síðuna þína

bestu kveðjur frá Dalvík Sigga og Bjössi

www.blog.central.is/brautarholt

SIGGA (IP-tala skráð) 3.5.2007 kl. 22:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband