17.5.2007 | 01:38
Vorið er komið og grundirnar gróa ...
gilin og lækirnir fossa af brún ...
Já, það er örugglega komið vor og sumarið þá á næsta leiti.
Við Karitas Árný, sonardóttir mín sem er 20 mánaða gömul, löbbuðum Höfðatúnið fram og til baka í dag. Hún er mjög meðtekin af hljóðum í öllum þessum vinnuvélum sem vinna og vinna og eru alveg óþreytandi. Þegar klukkan var hálf sex í dag sagði þessi litla stúlka: Attbú óó! Það þýðir að nú verði kyrrt um hríð. (Held ég örugglega
Athugasemdir
Hahahahaha, ég minnist vel þessa orðs hjá Guðbjörgu Sól minni, skrítið, ég hugsa að öll, allavega flest börn noti þetta orð á ákveðnum aldri, Attbúú - Óattbúú.
Og attbú takk fyrir mig.
Sigfús Sigurþórsson., 17.5.2007 kl. 01:45
Lundurinn þinn er frábær Guðmundur. Örugglega friðsæll og gott fyrir andann að hvílast þar - nú eða dunda í garðvinnu
Vilborg Valgarðsdóttir, 17.5.2007 kl. 22:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.