28.5.2007 | 17:11
Komin heim og allt við það sama
Skreiddist inn heima hjá mér um fimmleitið í morgun, þreytt en sæl með gott frí. Var samt vöknuð um tíuleitið og tilbúin til að takast á við hversdaginn. Veðrið er skárra en ég bjóst við og alls ekki svo kalt en flugmaðurinn (þessi sem talar :-) tilkynnti rétt fyrir lendingu að hér í höfuðborginni væri þriggja stiga hiti.
Holan hér fyrir utan hefur stækkað umtalsvert á þessari viku sem ég brá mér frá og það var eiginlega bara fyndið að á slaginu tólf byrjuðu vélamennirnir á vinna á höggbornum, beint fyrir utan gluggana hjá mér. Grannar mínir eru sennilega enn þreyttari á hávaðanum því þeir hringdu og kærðu verknaðinn. Það er nú einu sinni annar í hvítasunnu! Og ekki leið á löngu þar til lögreglubíll með tvo þjóna réttvísinnar innanborðs renndi niður í holuna og stöðvuðu þeir tiltækið hið bráðasta og við horfðum á eftir vélamönnum aka í burtu. Dásamleg þögn ríkti í u.m.b. þrjár klukkustundir. En viti menn, birtist þá ekki einn vélamaðurinn og byrjar að flytja grjótið í holunni fram og tilbaka. Hann var að hætta núna, klukkustund síðar. Mér er alveg hulin ráðgáta hvers vegna þessi klukkutími á gröfunni var svona bráðnauðsynlegur. Kannski er bara jafn vanabindandi fyrir suma að vinna á gröfunni sinni eins og það er fyrir mig og fleiri að setjast við tölvuna og blogga svolitla stund
Manni væri kannski nær að líta í eigin barm.
Auðvitað get ég líka sett mig í spor verktakans sem þarf örugglega að standa við gerða samninga og halda verkáætlun. Það er vandaverk að framkvæma svona stóra aðgerð eins og Höfðatorgið er inni í miðri íbúðabyggð og ef ekki er sátt við fólkið í næsta nágrenni er allt fljótt að fara í hund og kött og kærur til lögreglunnar geta orðið daglegt brauð. Ekki flýtir það fyrir trúi ég.
Aðgát skal sem sagt höfð ...
Athugasemdir
Góður punktur Guðmundur, ég hafði ekki hugsað þetta í þá áttina
Vilborg Valgarðsdóttir, 28.5.2007 kl. 22:53
Fáðu Bryndísi Schram til að setjast í holuna þegar þið viljið frið. Það svínvirkar!
Viðar Eggertsson, 28.5.2007 kl. 22:54
Bryndís hefur, held ég, nóg að gera á vaktinni í Mosfelsbæ
Viðar, ég vona annars að Drakúla litli sé að ná sér af "aflimununum" í síðustu viku. Greyið litla. Ég á kött sem fékk þessa meðferð um sex mánaða aldurinn, það var voða erfitt að horfa uppá hjálparleysið í augum ræfilsins á eftir. Hann heitir reyndar Kristófer Kólumbus og er búinn að reyna ýmislegt verra síðan. Það var t.d. keyrt á hann tvisvar ...
Vilborg Valgarðsdóttir, 28.5.2007 kl. 23:20
Velkomin heim!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 28.5.2007 kl. 23:37
Drakúla er alsæll orðinn, mjög borubrattur og til alls vís.... nema eignast litla Drakúla, en ég held hann viti það ekki sjálfur, kannski sem betur fer!
Hann lætur eins og heimurinn sé allur á hans bandi. gott hjá þeim litla.
Velkomin heim annars, mín kæra.
Viðar Eggertsson, 29.5.2007 kl. 00:01
Velkomin heim ljúfan mín, gott að þú komst heil heim;-) Allt gott héðan, tókst að koma frá einni fermingarveislu án stórfellds klúðurs og kem í bæinn á fimmtudag! Hlakka til að sjá þig! Knús og kram
Halla (IP-tala skráð) 29.5.2007 kl. 17:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.