Allt er nú til

Eins og ýmsir lesendur þessarar síðu vita hætti ég að reykja fyrir þrem mánuðum síðan. Sem er ekki lengur í frásögur færandi sem slíkt, en afleiðingarnar hætta bara ekki að koma mér á óvart. 

Málmbragðið í munninum hefur ekkert lagast og matarlystin er enn mun meiri en hún var áður. Það er mjög vont að vera svangur, þá langar mann í eitthvað, bara eitthvað, ekkert endilega sígarettu. Slenið er að mestu horfið en mér var virkilega farið að ofbjóða sinnuleysið á tímabili. Hef tekið 2 töflur af Spirulina daglega í ca. 2 vikur og er öll önnur. Samt ekki nægilega hressileg til að nenna aftur í ræktina. Fékk mér þó hjól um daginn og hyggst hjóla í sumar mér til heilsubótar. Ég er enn ekki farin að geta hóstað eins og manneskja og munn- og hálsþurrkur hrjá mig nánast daglega. Og svo er það spæling að finna hellst bara vonda lykt eða áfram enga.

Ég er dálítið eirðarlaus á köflum og ákvað því að fara að prjóna eitthvað mér til sálubótar við sjónvarpið á kvöldin í staðinn fyrir að borða. Varð mér úti um prjónablað og fór að skoða leiðbeiningar og skammstafanir, en ég hef ekki prjónað árum saman. Þar á meðal var listi yfir stærðir og mál. Ég hef alla mína ævi notað stærðir S og M, eða frá 34 til 36.  Auðvitað hef ég alltaf verið mjó eins og görn, eins og handavinnukennarinn minn orðaði það svo smekklega í barnaskóla.

En í kvöld fékk ég sjokk ársins, ég varð svo hissa að ég settist hér við tölvuna til að setja þessa uppgötvun á blað/skjá. Ég hef tilhneigingu til að trúa öllu sem ég les (jafnvel þótt ég skrifi það sjálf Wink ) Samkvæmt stærðartöflunni í blaðinu nota ég núna 3 stærðir samtímis, eða M, L og XL. Ég ætla ekki að upplýsa hvaða stærð mældist hvar á skrokknum. En það verður fjandi erfitt að prjóna eftir uppskriftum þegar maður er orðinn svona misvaxinn! Á dauða mínum átti ég von - í orðsins fyllstu merkingu!

En auðvitað er alltaf hægt að prjóna trefil eða sjal ...

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Vá, vá, vá!!! Hef lengi verið medium í pilsum og XL í peysum ... er ein af þessum óheppnu D-konum sem allir halda að sé svo eftirsóknarvert. Hnusss! Þú átt alla mína samúð ... en þetta er svolítið skrýtið! 

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 30.5.2007 kl. 00:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband